Tveir leikir á sunnudaginn

Minnum á leiki morgundagsins bæði hjá stelpunum og strákunum.

Stelpurnar fá Val í heimsókn á Ásvelli kl. 17.00. Þetta verður án efa hörkuleikur. Báðum liðum var spáð góðu gengi í vetur og hafa bæði lið farið vel af stað. Búast má við spennandi og skemmtilegum leik sem enginn má missa af.

Kl. 19.15 taka strákarnir á móti Breiðablik. Ef strákarnir okkar verða vakandi ætti sigurinn að vera öruggur samkvæmt spánni. Haukum var spáð efsta sæti og Breiðablik neðsta. En spá er bara spá og ekkert er gefið fyrirfram. Varla þarf að taka fram að við mætum að sjálfsögðu öll og styðjum strákana.

Munið: Á sunnudag eru allir á Ásvöllum frá fimm og frameftir