Tvær stúlkur í U20 ára landsliðshóp HSÍ

Áróra Eyr PálsdóttirRagnheiður RagnarsdóttirValinn hefur verið æfingahópur fyrir U-20 ára landslið kvenna sem mun æfa saman í kringum áramótin og taka þátt í æfingamóti með liðum úr Olísdeild kvenna.
Haukar eiga tvær stúlkur í þessum hópi og bætast þær við þann góða hóp landsliðskrakka úr hópi yngri flokka handknattleiksdeildar og sýnir vel gott starf deildarinnar.

Stúlkurnar tvær eru:
Áróra Eir Pálsdóttir og
Ragnheiður Ragnarsdóttir.

Heimsíðan óskar þeim Áróru og Ragnheiði til hamingju með þessa viðurkenningu.

Fyrsta æfingin er 27. desember kl. 16:00 í Mýrinni, Garðabæ.

Áfram Haukar!