Skötuveisla á Þorláksmessu

HaukarVið minnum á hina árlegu skötuveislu sem haldin verður að venju hér í hátíðarsalnum að Ásvöllum á Þorláksmessu. Boðið verður uppá skötu og saltfisk ásamt meðlæti í föstu og fljótandi formi.

Veislan hefst kl. 12:00 og æskilegt er að menn skrái sig með fyrirvara til að auðvelda innkaup hráefna.

Skráning í síma 525-8700 eða á bhg@haukar.is. Einnig er hægt að skrá sig í afgreiðslunni á Ásvöllum.

Verði ykkur að góðu,
Sköturáð Hauka.
 

Áfram Haukar!