Tryggjum öll saman Haukasigur í dag!

Lúðvík GeirssonÍ dag kl. 16.00 er þriðji leikurinn í undanúrslitaviðureign Hauka og FH á Ásvöllum.  Ekkert annað en Haukasigur kemur til greina og það mun því ekki einungis reyna á styrk okkar leikmanna heldur ekki síður stuðning Hauka í horni og annarra stuðningsamanna félagsins.
Mætum öll tímanlega á Ásvelli í dag og eflum liðsandann og látum almennilega í okkar heyrast á pöllunum.  Okkar lið hefur landað öllum tiltlum vetrarins til þessa og við ætlum okkur líka að sæja þann stóra.

Við höfum fulla trú á okkar liði og vitum að strákarnir ætla sér sigur og klára þetta einvígi með sóma.
Við Haukar höfum áður verið í sömu stöðu og sýndum þá hvað Haukahjartað er stórt og öflugt þegar allir standa saman.  Nú endurtökum við leikinn í dag.  Allir á Ásvelli og hvetjum okkar menn til sigurs.

Áfram Haukar!