Toppslagur í Safamýri á fimmtudag.

HaukarFimmtudaginn 24. nóvember sækja Haukastrákar hitt toppliðið í N1 deildinni heim, Fram.

Fram deila efstu 2 sætunum með Haukum en liðin eru jöfn að stigum með 12 stig en Haukar eiga að vísu frestaðan leik til góða.

Fram er eina liðið sem lagt hefur Haukamenn það sem af er tímabils og má búast við að Haukar mæti dýrvitlausir til leiks með það markmið að hefna fyrir tapið á heimavelli síðan í annarri umferð.

Framarar ætla sér hins vegar ekki að gefa neitt eftir í toppbaráttunni og má því búast við hörkuleik í Safamýri.

Hvetjum alla til að mæta á völlinn og styðja Hauka til sigurs en leikurinn hefst klukkan 19:30.

 

Áfram Haukar!