Tap í fyrsta leik – næsti leikur strax á morgun

HaukarEins og flestum Haukum er eflaust kunnugt töpuðu strákarnir okkar fyrsta leik sínum í úrslitarimmunni gegn Fram um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta.

Í stuttu máli sagt náðu strákarnir sér aldei almennilega á strik í leiknum og voru undir nánast frá byrjun, slæmur kafli í byrjun leiks þar sem Fram komst í 7-2 reyndist okkar drengjum of erfiður að brúa.

Í seinni hálfleik fengu Haukar tvisvar tækifæri til að jafna en brást bogalistin í bæði skiptin og smá saman gengu Framarar aftur á lagið og innbyrtu tveggja marka sigur 20-18.

Næsti leikur liðanna er strax annað kvöld og fer hann fram í Safamýri, heimavelli þeirra Frammara kl.19:45. Við hvetjum að sjálfsögðu allt Haukafólk til að fjölmenna á leikinn, nú er ljóst að við þurfum að vinna Fram allavega einu sinni á þeirra heimavelli til að landa titlinum og því ekki að byrja strax annað kvöld!

Áfram Haukar!