Getraunaleiknum lokið

HaukarUm síðustu helgi var síðasta umferð Haukagetrauna spiluð. Gríðarleg spenna er um efstu sætin þar sem glæsilegir vinningar eru í boði.

Úrslit keppninnar verða tilkynnt í sérstakri athöfn í hálfleik á fyrsta heimaleik okkar í meistaraflokki karla í fótbolta 17. maí nk.

Keppnisráð þakkar öllum þátttakendum og starfsmönnum keppninnar fyrir störf og þátttöku í skemmtilegri keppni í vetur. Lifið heil!

Keppnisráð