Strákarnir okkar – áfram Ísland!

HaukarNú þegar leikur landsliðs Íslands og Katar er nýlega hafinn er gaman að vitna í jákvæða frétt í blaðinu Hafnarfjörður sem kom út í dag, en blaðið getur þess að í landsliði Íslands séu níu einstaklingar sem hafa leikið með hafnfirskum liðum í handknattleik.  Haukar geta vel við unað, en af  þessum  níu einstaklingum eru sex  sem  hafa leikið með Haukum og flestir  eru þeir uppaldir Haukastrákar, en þeir eru Aron Rafn Eðvarðsson, Stefán Rafn Sigurmannsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson, Kári Kristján Kristjánsson, Vignir Svavarsson og Þórir Ólafsson.  Þá er ekki síður ánægjulegt að geta þess að  landsliðsþjálfarinn, Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka og fyrrum leikmaður er skipstjórinn í brúnni.

Nú er bara að óska landsliðinu góðs gengis.  Áfram Ísland.