Stjarnan – Haukar í kvöld

Haukastúlkur fagna sigri í vetur. Mynd: Eva Björk

Haukastúlkur fagna sigri í vetur. Mynd: Eva Björk

Það verður sannkallaður hörkuleikur í kvöld kl. 19:30 í TM-höllinni þegar Haukastúlkur heimsækja Stjörnusúlkur í leik í 19. umferð Olís-deildar kvenna.

Fyrir leik kvöldsins eru bæði lið búin að leika 19 leiki og eru Haukastúlkur í 2. sæti með 30 stig á meðan Stjörnustúlkur eru í 6. sæti með 26 stig en þær hafa verið á mikilli siglingu síðustu vikur og tryggðu sig líka og Haukastúlkur inn í Final 4 í vikunni. Liðin hafa mættst einu sinni áður í vetur og þá í Schenkerhöllinni en þann leik unnu Haukar 25 – 19 í leik þar sem vörn og markvarsla Haukaliðsins var frábær.

Það er því sannkallaður stórleikur í kvöld það sem barist verður til síðasta blóðdorpa um stigin tvö. Það er því um að gera fyrir Haukafólk að fjölmenna í Garðabæinn í kvöld og styðja stelpurnar áfram í toppbaráttunni í deildinni. Áfram Haukar!