Stelpurnar halda norður yfir heiðar

Meistaraflokkur kvenna í handbolta leggja land undir fót í dag þegar þær fara norður á Akureyri og leika þar við heimstúlkur í kvöld, þriðjudagskvöld. Leikurinn við KA/Þór hefst kl. 18:00 í KA heimilinu og má búast við hörkuleik en Haukastelpur er fyrir leikinn í 3. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 16 leik á meðan KA/Þór er í 5. sæti með 17 stig og eru því bæði lið í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni en aðeins fara 4 lið þangað. Það er því til mikils að vinna fyrir sigurliðið í kvöld en fyrir áhugasama þá er leikurinn sýndur í beinni á Stöð 2 Sport 2 og því um að gera fyrir fólk sem ekki kemst á leikinn að fylgjast með þar. Áfram Haukar!