Grótta kemur í heimsókn

Meistaraflokkur karla í handbolta fær Gróttu í heimsókn í Schenkerhöllina á morgun, sunnudag, kl 16:30. Þetta er leikur í 16.umferð Olísdeildar karla en fyrir leikinn eru Haukar í 2. sæti deildarinnar á meðan Grótta er í 10. sæti það er því til mikils að vinna fyrir bæði lið í þeirri baráttu sem liðin eru í.  Haukafólk þarf því að fjölmenna á morgun, sunnudaginn 24. febrúar, kl. 16:30 í Schenkerhöllina. Áfram Haukar!