GÁTLISTI FYRIR FERÐIR Á MÓT
Þegar farið er í lengri ferðir á mót þar sem nauðsynlegt er að gista er alveg nauðsynlegt að hafa allt sem á þarf að halda svo öllum líði vel.
Hérna er nokkurs konar gátlisti sem þið getið haft til hliðsjónar við undirbúning ferðar sem stendur yfir eina helgi.
Farið er fram á að foreldrar sendi börn sín hvorki með sælgæti né peninga. Af hálfu mótshaldara og fararstjóra verður séð fyrir öllum þörfum barnanna í sambandi við mat og drykk.
Ef foreldrar vilja koma einhverju á framfæri vegna krakkanna, t.d. ofnæmi eða eitthvað annað er þeim bent á að tala við liðsstjóra eða þjálfara tímanlega.
Allur búnaður,hver einstök flík,skal vera mjög vel merkt með nafni sía og og félagi.
Fáið stelpurnar til að aðstoða við pakka því sem þær ætla að hafa með sér.
Gott er að hafa allan farangur í einni tösku auk sundtösku.Ekki í plastpoka.
Hér á eftir kemur nauðsinlegu búnaður.
Svefnpoki eða sæng Félagsgalli Regn og vindgalli
Koddi Keppnisskór (úti/inni) Hlý peysa
Tannbursti Legghlífar Úlpa
Tannkrem Stuttbuxur og sokkar Húfa
Aukabuxur Sokkar Sápa / Sjampó
Sundföt Handklæði Þvottapoki
Góða skapið Nærföt Vatnsbrúsa
Afþreyingarefni (spil) Vettlingar Klæðnaður eins og þarf
Tjalddýna/Vindsæng Góður keppnisandi