Shellmót

Á miðvikudaginn fer 6. fl. karla á Shellmótið í Vestmannaeyjum. Alls fara 18 strákar (allir á eldra ári) og 4 fararstjórar (allir á besta aldri) auk þjálfara. Haukar eru að þessu sinni skráðir með tvö lið, B-lið og C-lið. Því miður gátum við ekki verið með A- og C-lið eins og við óskuðum eftir.

Heimasíða mótssins er http://shellmot.eyjar.is. Þar er hægt að fylgjast með mótinu, skoða myndir og skrifa í gestabók.

kv. Óli