2-1 tap í Ólafsvík

1. deild karla. Ólafsvíkurvöllur 16. júní 2005.

Lið Hauka

Amir –

Pétur, Svavar S, Daníel, Geoff Miles –

Arnar Steinn (Betim ’58), Kristján Ómar, Hilmar Trausti, Ómar Karl (Birgir ’58) –

Hilmar Rafn, Rodney Perry.

Amir var aftur kominn í mark Hauka fyrir þennan leik Hauka í 6. umferð 1. deildarinnar. Einnig hófu þeir Ómar Karl og Arnar Steinn inná í fyrsta skiptið þetta sumarið.

Var hér um að ræða mikinn baráttuleik þar sem 10 gul spjöld var brugðið á loft. Þar af fengu 8 leikmenn Víkings gula spjaldið, á meðan aðeins þeir Rodney og Hilmar Trausti fengu gult úr liði Hauka.

Á 39 mínútu kom Kristján Ómar Björnsson okkur yfir með marki úr vítaspyrnu. Leikurinn jafnaðist hinsvegar á 42. mínútu þegar Svavar Sigurðsson setti boltann í eigið mark eftir fyrirgjöf. Á 55. mínútu náði svo Craig Campbell að skora sigurmarkið fyrir heimaliðið Víking. Lokatölur urðu því 2-1.

Eftir þennan leik eru Haukar dottnir niður í 5. sæti deildarinnar eftir tvo tapleiki í röð og eru með jafnmörg stig og Víkingur í 6. sætinu. En Víkingur Ólafsvík á þó einn leik til góða. Það er því ljóst að heimasigur á KS næsta laugardag er krafa ef ekki á í óefni að fara.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…