Selfoss mætir í Schenkerhöllina

Það er leikdagur hjá stelpunum í meistaraflokki kvenna en í kvöld fá þær Selfoss í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30. Fyrir leikinn eru stelpurnar í 4. sæti Olís deildar kvenna með 14 stig og eru þær 5 stigum á eftir toppliðunum. Á meðan er Selfoss á botni deildarinnar með 4 stig og er í harðri baráttu um að forðast fall úr deildinni.

Bæði lið mæta því dýrvitlaus til leiks til að ná í stigin 2 en Haukar eru að berjast um að tryggja sig inn í úrslitakeppnina á með Selfoss er að keppast um að forðast fall. Það má því búast við hörkuleik og því um að gera fyrir allt Haukafólk að fjölmenna í Schenkerhöllina í kvöld kl. 19:30. Áfram Haukar!