Byrjendanámskeið fyrir knattspyrnudómara

Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá Haukum að Ásvöllum miðvikudaginn 30. janúar kl. 21:00.

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Hauka og hefst kl. 21:00.  Námskeiðið stendur yfir í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.  Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi.

Námskeiðið er ókeypis.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. 100% viðvera á námskeiði skilyrði.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is