Riðilinn á Reykjavík Open

Strákarnir hafa unnið alla sína leiki í riðlinum á Reykjavík Open. Allt voru þetta stórsigrar: Haukar-Breiðablik 26-13, Haukar-ÍBV 25-13 og Haukar-Stjarnan 22-12.
Á morgun sunnudag spila strákarnir kl. 10.00 við liðið sem lendir í öðru sæti í C-riðli og kl. 14.00 eiga þeir leik við Val sem vann B-riðilinn.
Úrslitin eru um kvöldið, kl. 18.00 er leikur um 3ja sætið og kl. 20.00 um fyrsta sætið. Það er vonandi að strákarnir okkar taki þátt í þeim síðari.