Olísdeildar tvíhöfði

Það verður boðið upp á tvíhöfða á Ásvöllum á laugardaginn þegar að leikið verður í Olísdeildum kvenna og karla. Stelpurnar byrja þegar þær fá Val í heimsókn kl. 17:00. Svo taka strákarnir við kl. 19:15 þar sem Afturelding er mótherjinn. Það hefur ekki gengið sem skyldi í síðustu leikjum hjá liðunum en þau eru staðráðin í að breyta því á laugardaginn og þurfa hjálp frá Haukafólki til þess. Við minnum á að það er hægt að taka kvöldmatinn á Ásvöllum en boðið verður upp á rjúkandi heitar Club samlokur og glóðheita borgara milli leikja. Þetta eru leikir sem Haukafólk má ekki láta fram hjá sér fara. Áfram Haukar!