Ágæt þátttaka á fótbolta- námskeiðum í vetrarfríinu

Um 50 iðkendur sóttu sérstök fótboltanámskeið sem knattspyrnudeild Hauka stóð fyrir í vetrarfríinu.

Aðal þjálfarar á námskeiðinu voru þau Igor Kostic, Guðrún Jóna og Helga Helgad. og þá tóku leikmenn meistaraflokka og 2. flokks einnig að sér þjálfun, m.a. Óskar Sigþórs, Ísak Jóns, Dagrún Birta, Heiða Rakel, Kristófer Jóns, Máni Mar, Elín Björg, Erla Sól, Berghildur, Mikaela, Vikoría Diljá og Elín Klara.

 

Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta af þeim iðkendum sem sóttu námskeiðin ásamt nokkrum þjálfurum.