Olís-deildirnar og Píeta samtökin í samstarf til styrktar forvörnum gegn sjálfsvígum

Olísdeildin og Píeta samtökin, sem einbeita sér að forvörnum gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða, hafa tekið höndum saman og vinna nú í sameiningu að vitundarvakningu og söfnun fyrir samtökin. Söfnunin fer fram á pieta.is.

Í auglýsingaherferð, sem nú er hleypt af stokkunum, eru nokkrar af handboltastjörnum Olísdeildarinnar í aðalhlutverki, og fara þar með Píeta yfirlýsingu sem hvetur okkur til að vera til staðar fyrir þá sem líður illa og að tala upphátt um hlutina.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:  ,,Ég vil vera til staðar fyrir alla sem líður illa og leita til mín. Ég ætla ekki að standa aðgerðarlaus hjá ef mig grunar að einhver nálægt mér glími við vanlíðan, og gera mitt besta til að aðstoða. Án þess þó að ganga of nærri mér eða viðkomandi – en hvetja til að leita aðstoðar sérfræðinga ef þurfa þykir. Enginn ætti að burðast einn með sársauka. Ég vildi bara segja þetta upphátt.“

Auglýsinguna má sjá á heimasíðu Píeta, hér. 

,,Það er okkur ómetanlegur stuðningur að fá íþróttahetjurnar okkar í Olísdeildinni, sameiningartákn þjóðarinnar, til liðs við okkur. Samfélagið væri allt betra ef við færum öll eftir þeirri yfirlýsingu sem íþróttahetjurnar lesa upp. Með yfirskriftinni ,,Segðu það upphátt“ er verið að minna á mikilvægi þess að tala opinskátt um hlutina, leita í vinina, baklandið eða til fagfólks ef þér líður illa. En ekki síður mikilvægi þess að við hin látum öll vita af því að við séum til staðar fyrir alla þá sem standa okkur nærri og glíma við slíka vanlíðan að við ætlum ekki að standa aðgerðalaus hjá, við séum tilbúin til að hlusta og aðstoða eða í það minnsta hjálpa viðkomandi að leita sér aðstoðar,“ segir Sirrý Arnardóttir, framkvæmdastjóri Píeta samtakanna. Eftir páska 2018 verður opnuð sjálfsvígs- og sjálfsskaðamiðstöð í húsnæði samtakanna er á Baldursgötu 7 í Reykjavík.

,,Við erum afskaplega stolt af því að geta lagt hönd á plóginn og styðja við þetta mikilvæga átak. Fólk er að glíma við alvarlega erfiðleika í okkar samfélagi og ég vil hrósa Píeta samtökunum fyrir að sýna það hugrekki að opna þessa umræðu. Við hvetjum alla landsmenn og fyrirtæki að leggja Píeta-samtökunum og þessu brýna málefnu lið,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís.

Formaður HSÍ, Guðmundur B. Ólafsson, hafði þetta að segja um samstarfið: ,,HSÍ er afskaplega stolt af því að geta orðið PÍETA að liði í þessu mikilvæga málefni. Það á enginn að burðast einn með sársauka eins og segir í yfirlýsingunni og vonandi getur kraftur Olísdeildar karla og kvenna orðið öðrum hvatning í að aðstoða þá sem það þurfa. Sýnum hvort öðru stuðning og verum til staðar, Olísdeildin vill hjálpa að segja það upphátt.“

Fyrir alla leiki í Olísdeildinni á næstunni verður minnt á átakið með táknrænni athöfn. Leikmenn beggja liða ganga þá fram á gólfið og leggja hönd yfir öxl meðan yfirlýsingin verður flutt í hljóðkerfi.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…