Lengjubikarinn heldur áfram

 

Ljósm.: Hafliði Breiðfjörð, Fotbolti.net

Haukar taka á móti Stjörnunni í öðrum leik liðsins í A-deild riðli 3 í Lengjubikar karla þetta árið.

Haukar unnu góðan sigur á liði Leiknis í fyrstu umferðinni með fjórum mörkum gegn einu.

Stjarnan sigraði Keflavík hinsvegar með einu marki gegn engu og má því búast við hörkuleik í fyrramálið. Leikurinn hefst klukkan 12:30 en leikið verður að þessu sinni í Kórnum í Kópavogi.

Við hvetjum alla sem að sjá sér fært að mæta að koma á völlinn og styðja strákana til sigurs. Áfram Haukar!