Stórleikur í Dominos deild karla í kvöld, sunnudaginn 18. febr. kl. 19:15

það verður sannkallaður stórleikur í kvöld í Schenkerhöllinni er Íslandsmeistarar KR koma í heimsókn og etja kappi við sjóðaheita heimamenn.

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur en bæði lið eru í harðri baráttu um deildarmeistarartitilinn og að tryggja sér heimavallarétt fyrir úrslitakeppnina sem er á næsta leyti. Haukar sitja á toppnum með tveim öðrum liðum en hafa hagstæða innbyrðis viðureignir á móti báðum liðum. KR er einum leik á eftir og þeir þurfa sigur í kvöld ætli þeir sér að eiga möguleika á deildarmeistaratitlinum. Haukar geta með sigri komist langt með að tryggja sér 1-2 sætið og því er þessi leikur sannkallaður stórleikur.

Eftir þennan leik eru einungis þrjár umferðir eftir og geta Haukar komist einir á topp deildarinnar með 30 stig með sigri.

Við hvetjum alla Hafnfirðinga til að mæta og hvetja liðið áfram í þessum mikilvæga leik.