Mikilvægur sigur stelpnanna
Stelpurnar okkar unnu í kvöld mikilvægan sigur á liði ÍBV í DHL deild kvenna. Leikurinn fór fram á Ásvöllum og voru lokatölur 35-28, öruggur 7 marka sigur sem aldrei var í hættu. Leikurinn átti að hefjast klukkan 19:00 en hófst ekki fyrr en 20:00 vegna þess hve ÍBV komst seint uppá land.
Eyjastelpur byrjuðu leikinn betur. Þær komust í 2-0 en þá sneru okkar stelpur leiknum við og jöfnuðu 2-2 og komust svo yfir 3-2. Eftir það var aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda. Staðan í hálfleik var 18-13.
Í síðari hálfleik voru stelpurnar okkar áfram betri aðilinn í leiknum. Stelpurnar okkar voru ekki að spila neitt sérlega vel en þó mun betur en Eyjastelpur. Þetta var ekki leikur sem fær 10 í einkunn fyrir skemmtilegan handbolta eins og leikir Hauka og ÍBV hafa yfirleitt verið.
Hanna Guðrún Stefánsdóttir var markahæst í liði Hauka með 10 mörk. Öll mörkin hennar komu úr hraðarupphlaupum og er Haukafólk farið að kannast við Hönnu eins og hún lék í dag. Harpa skoraði 7 mörk og Ramune 6. Hjá ÍBV var Pavla Plaminkova markahæst með 9 mörk og Pavla Nevarilova með 7.
Næsti leikur stelpnanna er gegn Stjörnunni á laugardaginn. Leikurinn fer fram í Ásgarði og hefst klukkan 13:00. Við hvetjum alla Haukamenn til að mæta á leikinn og styðja okkar stelpur. Þær þurfa á stuðningi allra að halda í þessum erfiða leik. Á miðvikudaginn eftir viku leikur liðið svo aftur gegn Stjörnunni í 8 liða úrslitum SS bikarsins. Stuðningur áhorfenda er því rosalega mikilvægur í næstu leikjum.
ÁFRAM HAUKAR!!
