Meira um Evrópuveisluna

Fréttatilkynning

Karlalið Hauka mætir danska úrvalsdeildarliðinu Århus GF í C-riðli meistaradeildar Evrópu á laugardaginn kl. 16:00 á Ásvöllum. Århus GF er eitt sterkasta lið Danmerkur en það lenti í öðru sæti á síðustu leiktíð. Liðið er undir stjórn hins þekkta þjálfara Erik Veje Rasmussen, leikmanni danska landliðsins til margra ára og fyrrverandi þjálfari þýska stórliðsins Flensburg. Með liðinu leikur Íslendingurinn Sturla Ásgeirsson. Århus GF byrjuðu leiktíðina nokkuð illa, nokkrir lykilleikmenn áttu við meiðsli að stríða en liðið hefur unnið góða sigra að undanförnu. Liðið hefur ekki mikla reynslu af þátttöku í Evrópukeppni en liðið tók þátt í Evrópukeppni félagsliða fyrir tveimur árum og var þá slegið út af rússneska stórliðinu Dynamo Astrakhan. Ljóst er að um hörkuleik verður að ræða og mikilvægt er að áhorfendur styðji vel við bakið á heimaliðinu.

Kvennalið Hauka mætir svissneska liðinu St. Otmar í annarri umferð EHF keppninnar um helgina. Báðar viðureignir liðanna fara fram á Ásvöllum. Fyrri leikurinn fer fram á laugardag kl. 18:30 en seinni leikurinn á sunnudag kl. 17:00. Lítið er vitað um styrkleika svissneska liðsins og því ljóst að stuðningur áhorfenda er mjög mikilvægur fyrir stelpurnar okkar.

Frekari upplýsingar veita

Þorgeir Haraldsson, Sími: 894-6146
formaður handknattleiksdeilar Hauka

Þorvarður Tjörvi Ólafsson, Sími: 822-2867
fulltrúi í Evrópunefnd Hauka og fyrrum leikmaður Hauka og Århus GF

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…