Leikur 2: Haukar – Valur í kvöld

Eftir hökuleik í fyrsta leik liðanna er komið að næsta slag. Stelpurnar í meistaraflokki í handbolta eru staðráðnar í að jafna einvígið en vinna þarf 3 leiki til þess að komast í úrslitaeinvígið. Þær þurfa því stuðning alls Haukafólks í þessari hörkubaráttu sem þetta einvígi er. Það er því skyldumæting hjá öllu Haukafólki í rauðu í Schenkerhöllina í kvöld kl. 19:30 til þess að styðja stelpurnar til sigurs. Áfram Haukar!