Leikur nr. II hjá stelpunum í Borgarnesi í kvöld, föstudaginn 6. apríl kl. 19:15

Deildarmeistarar Hauka í Dominos deild kvenna fara vestur í Borgarnes og munu etja kappi við heimstúlkur í Skallagrími í leik nr. II í undanúrslitum, en staðan er 1-0 fyrir Hauka eftir nokkuð öruggan sigur á heimavelli.

Ljóst er að þetta verður gríðarlega erfiður leikur, en Fjösið er erfiður völlur heim að sækja þar sem Skallagríms stúlkur eru yfirleitt vel studdar á heimavelli.

Við hvetjum Haukafólk til að gera sér ferð vestur í kvöld í blíðunni og hvetja stelpurnar til sigurs í þessum mikilvæga leik.