Bygging knatthúss á Ásvöllum

Knatthús

Undanfarin misseri hafa forráðamenn Hauka unnið að undirbúningi að byggingu knatthúss að Ásvöllum. Ekki þarf að fara mörgum orðum um þörfina fyrir bættri aðstöðu til knattspyrnuiðkunar á Ásvöllum, en þörf fyrir byggingu knatthúss hefur lengi legið fyrir. Nú er hins vegar ljóst að stórt upphitað knatthús verður byggt á Ásvöllum.
Síðastliðinn föstudag fóru fulltrúar Hauka og lykilstjórnendur Hafnarfjarðarbæjar í skoðunarferð til að kynna sér byggingu nokkurra knatthúsa sem þegar hafa verið reist. Við fengum góðar mótttökur og kynningar á byggingu og notagildi knatthúsa, en farið var á Akranes, í Egilshöllina og Fífuna. Haukar hafa þegar sett af stað deiliskipulagsvinnu við undirbúning að byggingu knatthússins. Í ár verður unnið að forhönnun hússins og víða leitað fanga til að byggingin uppfylli sem best þær kröfur sem Haukar og íbúar kalla eftir. Haukar leggja mikla áherslu á að saman fari metnaður í uppbyggingu á Ásvöllum og að horft sé til þjónustuframboðs í takt við ört stækkandi íbúabyggð.
Með vísan í ofanritað er ánægjulegt að horfa til þess að innan örfárra missera verði risið knatthús í fullri stærð að Ásvöllum.

Áfram Haukar!

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…