KFUM slagur í kvöld

HaukarMeistaraflokkur karla tekur í kvöld á móti bikarmeisturunum úr systurfélaginu Val, heima að Ásvöllum klukkan 19:30, í kvöld, fimmtudag. Valsmenn sitja í 5. sæti deildarinnar með 4 stig en Haukar eru í 1.-2. sæti með 8. Valur þarf á sigri að halda til að komast í efri hluta deildarinnar en menn ganga einfaldlega ekki á Ásvelli og sækja sér bara 2 stig. Það má búast við æsispennandi leik þar sem hart verður barist.

Sjáumst á vellinum, 19:30 í kvöld!

Áfram Haukar!