Jafntefli í fyrsta leik ársins
Stelpurnar byrjuðu nýtt ár með jafntefli í Digranesi gegn HK, 29 – 29.
Stelpurnar okkar byrjuðu hrikalega illa. HK komst í stöðuna 6-1 en þá kom betri kafli okkar stelpna og náðu þær að jafna í stöðunni 12 – 12 og komast yfir 13 – 12. Í hálfleik höfðu stelpurnar okkar tveggja marka forskot, 17 – 15.
Byrjun síðari hálfleik byrjaði eins og byrjun fyrri hálfleiks. Stelpurnar okkar spiluðu ekki nógu vel og komust HK stelpur aftur yfir. Okkar stelpur náðu að jafna aftur og komast yfir og leiddu með einu marki nánast til leiksloka. Þegar rúm ein mínúta var eftir af leiknum náðu okkar stelpur tveggja marka forskoti en HK stelpur minnkuðu muninn í eitt mark. Stelpurnar okkar gerðu þau mistök að setja strax upp í kerfi í stað þess að spila aðeins út leiktímann og mistókst að koma boltanum í netið. HK stelpur brunuðu í hraðarupphlaup og náði að jafna metin 6 sekúndum fyrir leikslok og þar við sat, jafntefli niðustaðan 29 – 29.
Næsti leikur stelpnanna verður næsta föstudag þegar þær taka á móti Fylki á Ásvöllum.
