7.flokkur kvenna gerði það gott í Fífunni!
Haukastelpurnar úr Íþróttaskólanum stóðu sig ótrúlega vel um helgina í fótbolta á Hraðmótinu sem HK og Breiðablik stóðu fyrir. Það voru 15 lið frá 9 félögum sem tóku þátt og eftir að hafa svitnað, hlaupið og fórnað sér í mörgum leikjum varð niðurstaðan sú að Haukar A lenti í 1.sæti ásamt liði Álftaness og Haukar B í 2.sæti í keppni B-liða. Þetta er frábær árangur hjá stelpunum og greinilegt að fjölbreytt þjálfun í Íþróttaskólanum er strax farinn að bera ávöxt.
Haukar eru bestir 🙂
