Í kvöld léku okkar menn gegn Íslandsmeisturunum frá síðasta ári, Valsmönnum í nýrri og glæsilegri höll þeirra Hlíðarendapilta. Fyrir tímabilið var Valsmönnum spáð 2.sæti en okkar mönnum var spáð 3.sæti og því um mikilvægan leik að ræða fyrir bæði lið enda mikilvægt að sigra fyrsta leikinn á tímabilinu.
Okkar menn voru staðráðnir í að taka hart á Valsmönnum og skoruðu fyrsta mark leiksins en þar var að verki Freyr Brynjarsson en það mark kom úr hraðaupphlaupi. Næstu þrjú mörk leiksins voru heimamanna, staðan því orðin 3-1. Þá lokuðu okkar menn vörninni og skoruðu sex mörk í röð og breyttu stöðunni í 3-7. Eftir þetta bitu Valsmenn frá sér og jafnt og þétt komust meira inní leikinn og skömmu síðar var staðan orðin 10 – 10. Við skoruðum síðan þrjú síðustu mörk hálfleiksins. Staðan í hálfleik 10-13 okkar mönnum í vil.
Valsmenn mættu frískir til leiks eftir hálfleikinn og náðu að jafna leikinn 15 – 15 á einungis 7 mínútum og tók Aron Kristjánsson þjálfari Hauka því til þess ráðs að taka leikhlé. Okkar menn náðu að stöðva Valsmenn í vörninni og kom Magnús Sigmundsson inná af bekknum. Haukar komust aftur yfir en Valsmenn jöfnuðu síðan aftur 18 – 18. Þá tóku okkar menn á skarið og skoruðu þrjú mörk í röð og kláruðu síðan leikinn á síðustu mínútunni þegar þeir skoruðu síðustu tvö mörkin í leiknum. Lokastaðan 20-23.
Haukar voru án línumannsins Kára Kristjáns Kristjánssonar sem er meiddur á fæti en hann mun missa af einhverjum leikjum til viðbótar.
Markmennirnir;
Gísli Guðmundsson átti fínan leik í fyrri hálfleik og tók sjö bolta en náði sér ekki nægilega á strik í seinni hálfleik en tók samt sem áður tvo bolta.
Magnús Sigmundsson kom inná í byrjun seinni hálfleiks og varði 6 bolta og nokkra á örlagastundu.
Útispilararnir;
Andri Stefan átti erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik en skoraði síðan fyrsta markið sitt í leiknum á 40.mínútu, hann átti góðan lokakafla og skoraði nokkur mikilvæg mörk.
Halldór Ingólfsson byrjaði á bekknum en kom inná þegar á þurfti og átti fínan fyrri hálfleik og skoraði þrjú mörk og átti þær ófáar stoðsendingarnar.
Freyr Brynjars. Byrjaði leikinn mjög vel og skoraði fjögur á stuttum tíma og gaf Haukum tóninn, spilaði lítið á seinni hálfleik.
Sigurbergur kom inná þegar líða var farið á fyrri hálfleikk og átti ágæta innkomu og kryddaði örlítið uppá sóknarleikinn.
Halldór Ingólfs. 5mörk /10 skot
Andri Stefan 5/11
Freyr Brynjars. 4/5
Sigurbergur 4/8
Arnar Péturs. 3/4
Þröstur 1/1
Gunnar Berg 1 /5
Jón Karl 0/1
Arnar Jón 0/1
Gísli Guðmundsson; 9 varðir boltar / 38.mínútur
Magnús Sigmundsson; 6 varðir boltar / 22.mínútur
Gangur leiksins;
1H -0V | 1-3 | 7-3 | 9-6 | 10-10 | 13-10 | 15-15 | 18-18 | 21-18 | 23-20 |
– Arnar Daði Arnarsson