Aron Kristjánsson þjálfari Hauka var nokkuð kátur eftir sigurleikinn í kvöld gegn Val er ritari síðunnar tók hann að máli, en þetta var hans fyrsti alvöru leikur sem hann þjálfar Hauka.
Þetta hlýtur að vera mikilvægur sigur fyrir liðið ?
– Já, auðvitað er þetta það, ég mundi segja að þetta hafi verið sigur liðsheildarinnar. Við vorum að berjast vel fyrir þessu og það voru allir að reyna að skila sínu til að fá sigur í hús. Við vorum ekki að fá þann hraða í leikinn sem við vorum að vonast til, kannski eðlilegt enda fyrsti leikur og einhver spenna í mannskapnum en við vorum að spila gríðarlega góða vörn og menn voru að gefa vel af sér. Og þetta gefur liðinu aukið sjálfstraust fyrir framhaldið.
Haukar voru yfir nær allan leikinn eða úr stöðunni 4-3, en þetta var samt ekkert öruggt nema bara undir lokin ?
– Nei, alls ekki, þetta var mjög jafn leikur fannst mér. Við vorum með frumkvæðið í leiknum og fannst mér við vera ívið sterkari en við vorum samt sem áður ekki að fá þann sóknarleik við vildum fá í dag og það er eitthvað sem við verðum að kíkja á.
En hvað með Valsmenn, þeir eru með hörkulið ?
– Já, þetta er eins og ég segi, það verða mörg lið að berjast á toppnum og algjörlega ómögulegt að segja til um hver hampar sigri, hvort það verði Stjarnan, Valur, Haukar eða HK eða hvaða lið sem það verður það verður ótrúlega jafnt á toppnum
Næsti leikur gegn ÍBV á Ásvöllum, það hlýtur að vera stefnt á sigur í þeim leik ?
– Já, það verður það. En þar ætlum við að reyna að fá mikið af okkar eigin krökkum í húsið og reyna að stíla á yngri flokkana og hvetja alla okkar eigin iðkendur að mæta, og foreldra, og reyna að fá góða stemningu og reyna byrja þetta með ‘style’ á Ásvöllum
Við hvetjum því fólk eindregið að mæta á Ásvelli laugardaginn 22.september þegar okkar menn taka á móti Eyjamönnum, en meira um þann leik verður fjallað þegar nær dregur.
– Arnar Daði Arnarsson