Haukarstelpurnar fara í höllina í kvöld – Bikarsaga Haukastelpna rakin

Harpa Melsteð varð tvisvar bikarmeistari með HaukumÍ kvöld kl. 20:00 leika Haukastelpur í undaúrslitum Coca Cola bikarsins. Annað árið í röð er leikið eftir nýju fyrirkomulagi þar sem undanúrslitin eru einnig leikin í Laugadalshöll og er þetta því í fyrsta skipti sem Haukastelpur taka þátt í því. Áður var það þannig að aðeins úrslitaleikurinn var leikinn í Höllinni og hafa Haukastelpur komist í bikarúrslit sex sinnum og í fjögur skipti hafa þær unnið bikarinn.

Fyrsta skiptið sem Haukastelpur komust í bikarúrslit var árið 1997 en þá var mótherjinn sá sami og er í kvöld, Valur. Haukastúlkur unnu þann leik 16 – 13 eftir að hafa verið yfir 9 – 6 í hálfleik en leikurinn var spennandi allan tímann en Haukar voru á endanum sterkari og skoruðu síðustu 3 mörk leiksins. Markahæstar fyrir Hauka í leiknum voru þær Judit Esztergal og Hulda Bjarnadóttir með 4 mörk hver. Þessi sigur markaði tímamót hjá kvennaliði Hauka en þetta var fyrsti bikarmeistaratitill Haukakvenna og náðist hann í fyrstu tilraun.
Næst komust Haukastúlkur í úrslit tveimur árum síðar og mótherjinn það skiptið var Fram. Haukastelpur upp á annan spennuleikinn en ekki fór það eins og í fyrra skiptið því Haukastelpur lutu í lægra haldi fyrir Fram 17 – 16. Í þeim leik var það markmaður Fram sem gerði útslagið en Haukar voru með skelfilega skotnýtingu í leiknum.
Bikarúrslitin náðust næst árið 2001 og mótherjinn það árið var ÍBV og enn eina ferðina var þetta spennuþrunginn bikarslagur en leikurinn fór í framlengingu eftir að jafnt hafi verið að loknum venjulegum leiktíma 17 – 17. Aftur var það markvörður mótherjanna sem gerði útslagið en Haukar skoruðu aðeins 2 mörk í allri framlengingunni og töpuðu 21 – 19.
Aftur voru Haukastelpur mætta í Höllina tveimur árum síðar en árið 2003 mættu þær aftur ÍBV og mættu Haukastúlkur grimmar til leiks og staðráðnar í því að hefna fyrir tapið tveimur árum áður. Leikurinn var jafn og spennandi og voru Eyjastúlkur yfir í hálfleik 11 – 10 en í seinni hálfleik náðu Haukakonur að komst betur inn í leikinn og unnu að lokum 23 – 22. „Gamla“ kempan Harpa Melsteð var markahæst Haukakvenna í leiknum með 5 mörk og fagnaði þar öðrum bikartitli sínum og Haukakvenna.
Árið eftir mættust liðin á ný í bikarúrslitum og þá náðu Eyjakonur að hefna fyrir tapið árið á undan með sigri 35 – 32 eftir að hafa verið yfir 17 – 16 í hálfleik en Eyjakonur sem voru með feiknar öflugt lið á þessum tíma voru yfir nær allan leikinn. Markahæstar Hauka voru Ramune Pekarskyté með 11 mörk og Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir skoraði 9 mörk en Ragnhildur verður mótherji Haukas í dag þar sem hún leikur núna með Val.
Árið 2006 komust Haukakonur enn ný í bikarúrslit en eins og svo oft áður var mótherjinn ÍBV. Haukastúlkur komur ákveðnar til leiks og staðráðnar í því að láta ekki ÍBV vinna sig eina ferðina enn og voru yfir 12 – 10 í hálfleik og héldu þær svo forystunni út leikinn og unnu að lokum 29 – 25, þar sem Hanna Guðrún Stefánsdóttir átti stórleik og skoraði 14 mörk en Hanna leikur með Stjörnunni í dag í hinum undanúrslitaleiknum.
Síðast voru Haukastúlkur í höllinni árið 2007 þar sem mótherjinn var Grótta. Haukarstúlkur unnu þann leik 25 – 22 eftir að hafa verið yfir nánast allan leikinn og unnu þar með sinn 4 bikarmeistaratitil. Markahæstar Haukastúlkna í leiknum voru Ramune Pekarskyté og Hanna Guðrún Stefánsdóttir með 7 mörk hvor.

Sagan er því þannig að kvennalið Hauka hefur komist í bikarúrslit 7 sinnum og unnið bikarinn í 4 af þessum skiptum en síðast vannst titillinn 2007 en það er einmitt einnig síðasta skiptið sem Haukar voru í úrslitum. En við vonum að breyting verið á í kvöld þegar Haukastúlkur mæta Val kl. 20:00 í Laugardalshöllinni en upphitun hefst á Ásvöllum kl. 18:00 og rútur fara síðan í Höllinn kl. 19:00 og taka einnig fólk til baka. 
Mætum öll í rauðu og styðjum Hauka til sigurs í bikarnum. Áfram Haukar!