Haukar-Stjarnan ESSÓ deild karla

Strákarnir okkar unnu auðveldan sigur á Stjörnunni 37-26 á Ásvöllum í gærkvöldi. Okkar menn voru lengi í gang og nokkuð jafnt markaskor á liðunum til að byrja með, 3-3, 7-6, 8-8, 10-10 en þá sögðu okkar menn hingað og ekki lengra og náðu góðu forskoti í hálfleik 18-12. Þeir byrjuðu seinni hálfleikinn með sama hætti og juku forskotið, 21-13, 26-17, 33-19 en slökuðu svo aðeins á og endaði leikurinn eins og fyrr segir 37-26. “Ungu drengirnir” okkar spiluðu stóran hluta seinni hálfleiks og stóðu sig vel.
Ekki er hægt að segja að leikurinn hafi verið spennandi, yfirburðir okkar manna voru það miklir. Tvö stig komu í hús og það er það sem telur.