Haukar – Stjarnan í Schenkerhöllinni í kvöld

Haukar - Stjarnan. 22. umferð 9. mars kl. 19.30Í kvöld kl. 19.30 taka Haukapiltar á móti Stjörnunni í 22. umferð Olísdeildar karla. Þessi lið hafa mæst tvisvar í vetur en fyrri leikurinn var í Schenkerhöllinni 2. október og endaði hann með jafntefli, 26-26 (13-11). Seinni leikurinn var í Mýrinni 27. nóvember og þá sigraði Stjarnan, 29-25 (17-13). Staðan liðanna í deildinni er samt ólík. Haukar hafa verið á mikilli siglingu eftir áramót og ekki tapað leik í deildinni og eru sem stendur í 5. sæti með 21 stig. Stjarnan er í því 9. með 12 stig. Bæði lið þurfa svo sannarlega þessum tveimur stigum að halda sem eru í boði í kvöld og með góðum stuðningi áhorfenda þá er ég viss um að það verði Haukar sem sigri. Mætum öll og styðjum okkar menn.

Áfram Haukar!