Frábær sigur Hauka á sterku liði Stjörnunnar

Marija Gedroit, Haukar vs.Valur leikur II úrslitakeppni Olísdeildar kvenna 8. apríl 14. Mynd visir.is

Marija Gedroit átti stórleik í kvöld

Stelpurnar OKKAR í meistaraflokki kvenna unnu í kvöld sterkan 20-21 sigur á liði Stjörnunnar en leikið var í Garðabænum. Haukastelpur leiddu mest allan leikinn og náðu mest með 6 marka forustu. Marija átti stórleik  í vörn og sókn og skoraði 10 mörk þar af 8 í fyrri hálfleik. Í hálfleik var staðan 12-16. Puscas, sem hafði átt ágætis fyrri hálfleik, byrjaði á bekknum í þeim síðari og tók Sólveig hennar stöðu og átti stórleik. Þessi sigur var fyrst og fremst sigur liðsheildarinnar. Við hvetjum allt Haukafòlk að flykkjast um stelpurnar og fylgja þeim eftir í þeim leikjum sem eftir eru í Olísdeildinni.

Mörk Haukar: Maria Gedroit 10, Ragnheiður Ragnarsdóttir 4, Karen Helga Díönudóttir 2, Gunnhildur Pétursdóttir 2, Ragnheiður Sveinsdóttir 1, Agnes Ósk Egilsdóttir 1, Áróra Eir Pálsdóttir 1.

Áfram Haukar!