Haukar Reykjavík Open meistarar

Haukar unnu Reykjavík Open kvenna í handbolta þegar meistaraflokkur kvenna lagði Val að velli í úrslitaleik mótsins 33-22.

Valur varð Reykjavíkurmeistari þrátt fyrir tapið en lið utan Reykjavíkur geta ekki orðið Reykjavíkurmeistarar.

Ramune Pekarksyte skoraði 7 mörg og var markahæst ásamt Tatjönu Zulkovu sem setti einnig 7 mörk. Næstar þeim komu þær Nína Arnfinnsdóttir og Hanna G. Stefánsdóttir með 6 mörk hvor.