Æfingar hefjast 1. september

Æfingar í körfubolta hefjast á morgun, mánudaginn 1. september samkvæmt æfingatöflu.

Hægt er að sjá æfingar hvers flokks með því að smella á hnappinn æfingatöflur hægra megin á síðunni eða með því að smella á yngri flokkar hérna vinstra megin og velja viðkomandi flokk.

Í vetur hefur bæst við eitt íþróttahús í flóruna hjá okkur Haukamönnum og verða æfingar í nýjum íþróttasal Hraunvallaskóla í Vallarhverfinu.

Einnig er hægt að nálgast allar upplýsingar um æfingagjöld hægra megin á síðunni  með því að smella á hnappinn æfingagjöld.