Haukar komnir í úrslit eftir dramatískan sigur á FH

Varnar - og línutröllið, Jón Þorbjörn, skoraði sigurmarkið í dag„Haukar Haukar við látum aldrei bugast“ segir í einu Haukalaginu og það á svo sannarlega vel við á þessari stundu. Það kom mörgum á óvart að FH skyldi ná 0 – 2 forystu í einvíginu gegn Haukum og margir sem sögðu að Haukaliðið væri orðið sadd o.s.frv. Eftir annan leikinn gerðist ég svo djarfur hér á heimasíðunni okkar að minna fólk á að þetta væri langt frá því að vera búið og að þrátt fyrir að við værum búin að tapa tveimur í röð gegn FH þá hefðu strákarnir unnið 5 í röð þar á undan og þetta væri vel hægt. Nú situr maður sáttur og hugsar þvílík endurkoma og barátta í þessum strákum og þvílíkir stuðningsmenn. Leikurinn í dag var hin besta skemmtun og voru síðustu mínúturnar algjör háspenna. Haukar náðu að komast yfir 28 – 27 þegar nokkrar sekúndur voru eftir með marki frá Jóni Þorbirni eftir ævintýralega flotta sendingu frá Árna Steini. Jón hamraði boltann í netið og FH-ingar tóku strax leikhlé og þá lifðu 3 sekúndur af leiknum en náðu ekki að nýta sér síðustu sóknina þrátt fyrir að vera ótrúlega nálægt því. Það er ekki úr vegi að þakka FH-ingum fyrir skemmtilegt einvígi sem stóð sannarlega undir væntingum. Bæði lið áttu slæma daga en 3 af 5 leikjum liðanna voru hörkuhandboltaleikir sem hefðu getað dottið hvorum megin sem var en okkar menn stóðust pressuna og álagið, til hamingju drengir.

Leikurinn í dag var sannarlega sigur liðsheildarinnar eiginlega Haukaheildarinnar því áhorfendur voru líka frábærir. Markahæstur í leiknum í dag var Árni Steinn Steinþórsson með 8 mörk en Sigurbergur var með 6/2 en allt liðið stóð sig mjög vel í þriðja leiknum í röð þar sem allt var undir, þvílíkur karakter

 Mörk Hauka: Árni Steinn 8, Sigurbergur 6/2, Elías Már 4, Einar Pétur 3, Jón Þorbjörn 3, Jónatan Ingi 2, Adam Haukur 1, Tjörvi 1.
Markvarsla: Einar Ólafur 11 (32%), Giedrius 4 (50%).

Við fögnum í kvöld en síðan er það næsta verkefni en það er úrslitaeinvígið við hörkulið Eyjamanna. Þessi lið hafa mæst þrisvar í vetur, einu sinni í Eyjum og tvisvar í Schenkerhöllinni, og Haukar hafa alltaf haft betur. Sigrar í vetur telja ekki núna og strákarnir þurfa að mæta af fullum krafti í þessar viðureignir og við verðum að vera jafn duglega að mæta á pallana og láta í okkur heyra. 

 

Fyrsti leikurinn er núna á mánudaginn 5. maí kl. 19:45 í Schenkerhöllinni.
Leikur 2 er í Eyjum fimmtudaginn 8. maí kl. 19:45
Leikur 3 er í Schenkerhöllinni Laugardaginn 10. maí kl. 16:00

Ef með þarf:

Leikur 4 Eyjum þriðjudaginn 13. maí kl. 19:45
Leikur 5 Schenkerhöllin fimmtudaginn 15. maí kl. 19:45

Upplýsingar um hópferðir til Eyja verða birtar um leið og fyrirkomulagið á þeim liggur ljóst fyrir. 

Áfram Haukar! 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…