Haukar-KA mfl.karla

Strákarnir hrisstu sig saman og unnu mjög sannfærandi sigur 39-28 á KA á Ásvöllum í kvöld.

Haukar skoruðu fyrsta markið, KA jafnaði 1-1, Haukar áttu næstu tvö og héldu síðan forystunni það sem eftir var leiks. Í hálfleik var staðan 20-13 og í síðari hálfleik héldu strákarnir okkar áfram og unnu glæsilegan ellefu marka sigur .

Haukar-KA mfl.karla

Strákarnir okkar unnu KA á Ásvöllum í dag 39-32 og segja má „allt er þegar þrennt er“. En þetta er þriðji leikur liðann á þremur vikum og hafa Haukar unnið þá alla. Fyrst var úrslitaleikurinn í Reykjavík Open, síðan Meistarar Meistaranna og loks deildarleikurinn í kvöld.

Í dag skoruðu KA menn fyrstu tvö mörkin og Haukar jöfnuðu 4-4 og fóru yfir 6-4 en KA menn jöfnuðu í 7-7. Þá var jafnt á flestum tölum í 15-15 en strákarnir okkar náðu þá góðu taki á norðanmönnum og staðan í hálfleik var 21-16. Í seinni hálfleik héldu Haukar forystu þar til KA jafnaði 25-25 og komst yfir 27-28. Jafnt var 29-29 en þá settu okkar menn í gírinn og gerðu út um leikinn og unnu góðan sigur 39-32.