Haukar-KA/Þór mfl.kvenna

Stelpurnar okkar unnu góðan sigur á KA/Þór á Ásvöllum í dag 37-33. Allt annað var að sjá stelpurnar spila í dag. Brosið var til staðar og ótrúlegt hvað lítið bros breytir miklu um spilamennskuna.
Fyrri hálfleikur var jafn á nánast öllum tölum framan af . Undir lokin náðu stelpurnar okkar ágætis forskoti og staðan í hálfleik var 17-14. Í seinni hálfleik náðu gestirnir að jafna 20-20, við náðum góðri stöðu 25-21 en aftur jafna gestirnir 27-27. Þá bættu Haukar í og skoruðu næstu fimm mörk og staðan 32-27 og héldu þær forystunni það sem eftir var.
Lítið var um varnir hjá báðum liðum enda skoruð 70 mörk í leiknum. Kannski var það biðin eftir að leikurinn hæfist sem olli þessu varnarleysi, en tæplega klukkutíma seinkun varð á leiknum þar sem engir dómarar mættu til leiks. Uppákoma sem á ekki að eiga sér stað