Haukar handhafar allra titla

Birkir Ívar var maður leiksinsHaukar unnu glæsilegan sigur á Valsmönnum í úrslitaleik Eimskipsbikar karla um helgina 23-15. Haukar eru því ríkjandi Íslandsmeistarar, bikarmeistarar, deildarmeistarar og deildarbikarmeistarar! Frábær árangur hjá strákunum. Þetta var fyrsti bikarmeistaratitill Hauka í karlaflokki frá árinu 2002 og því um langþráðan titil að ræða. Birkir Ívar Guðmundsson var maður leiksins en hann varði 24 skot og hélt Valsmönnum í heljargreipum eins og markafjöldinn ber með sér. Guðmundur Árni Ólafsson átti stórleik og var markahæstur með 7 mörk. Varnarleikurinn var í fyrirrúmi hjá báðum liðum enda markaskorið lágt og meira í takt við úrslit handboltaleikja á níunda áratug síðustu aldar.

Leikmenn beggja liða virtust mæta nokkuð taugaspenntir til leiks en um leið reiðubúnir að berjast eins og ljón í vörninni. Eftir 15 mín leik var staðan 4-2 fyrir Hauka og í hálfleik höfðu Haukar eins marka forystu 9-8. Áfram var jafnræði með liðunum þar til staðan var 14-14 en þá breyttu Haukar um vörn, fóru í 6:0 og náðu frábærum kafla síðustu 10-15 mín sem þeir unnu 9-1 og lokatölur 23-15 eins og áður segir. Valsmenn lentu á vegg á þessum kafla sem fólst í sterkri vörn og frábærri markvörslu Birkis Ívars.

Að leik loknum hélt Haukafólk í Fjörðinn þar sem beðið var eftir liðinu. Stuttu eftir að leikmenn komu í hús var tilkynnt að bikarinn ásamt nokkrum leikmönnum væri á leiðinni í þyrlu! Þetta framtak hefur vakið mikla athygli en það var Tæki.is sem stóð fyrir þessu frábæra framtaki. Og eins og við var að búast var gleðið fram á rauða nótt á Ásvöllum.

Umgjörðin í kringum leikinn var frábær. Áhorfendabekkirnir þéttsettnir, Haukafólk í hvítu og Haukabandið í pöllunum stjórnaði stemmningunni. Haukar þakka styrktaraðilum og áhorfendum fyriir stuðninginn og Val og Fram auk HSÍ fyrir samstarfið í kringum leikina.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…