Haukar halda í Garðabæinn

Það er stutt á milli leikja þessa daganna hjá meistaraflokki karla en í kvöld, fimmtudagskvöld, halda þeir í Garðabæinn þar sem þeir leika við Stjörnuna í Mýrinni kl. 20:00. Það eru allir leikir gríðarlega mikilvægir þessa stundina en fyrir leikinn eru Haukar í efsta sæti deildarinnar með 25 stig úr 16 leikjum en á eftir þeim koma 3 lið með 24 stig þannig að það má ekki mikið mistíga sig mikið. Stjarnan er 7. sæti með 13 stig og er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Það má því búast við hörkuleik sem Haukafólk vill ekki missa af. Áfram Haukar!