Haukar – FH 15. maí UPPFÆRT

Uppselt er á leikinn og eiga allir sem óskað hafa eftir miða að hafa svar. (Munið að athuga junk möppuna)

Á laugardaginn kl 20.00 fer fram Hafnarfjarðarslagur af bestu gerð á Ásvöllum þegar strákarnir okkar fá nágranna okkar í FH í heimsókn.

Með sigri geta Haukar tryggt sér deildarmeistaratitilinn 2021 og vilja að sjálfsögðu gera það fyrir framan eins mikið af Haukafólki og reglur leyfa.

Engin almenn miðasala verður á leikinn en við ætlum að bjóða uppá forskráningu fyrir Hauka í horni og iðkendur handknattleiksdeildar Hauka.
Til að tryggja sér miða þarf að senda tölvupóst handbolti@haukar.is fyrir klukkan 22:00 á morgun föstudag þar sem fram þarf að koma kennitala, nafn og símanúmer.

Haukafólk fjölmennum á laugardag og hvetjum strákana okkar áfram til sigurs ‼️

🔴ÁFRAM HAUKAR🔴