Skráningar formlega hafnar – Sumaríþróttaskóli Hauka

Það styttist óðum í að grunnskólanir ljúki sínu formlega starfi og er því sumarfríið rétt
handan við hornið. Það er því okkur sönn ánægja að tilkynna að hér með hafa skráningar fyrir
Sumaríþróttaskólann formlega hafist. Heildaryfirlit námskeiða er hægt að skoða með að opna eftirfarandi skrá: Sumaríþróttaskólinn 2021

Þetta árið fara skráningar fram í gegnum þjónustukerfið sportabler, ólíkt því sem hefur verið undanfarin ár.

Grunnupplýsingar og verð er hægt að finna inná slóðinni hér fyrir neðan:

https://www.sportabler.com/shop/haukar/

Fyrir ítarlegri upplýsingar um hvert og eitt námskeið er farið inn á eftirfarandi slóð:

https://www.haukar.is/sumarithrottaskoli-hauka/

Einnig er hægt að hafa samband fyrir frekari upplýsingar á netfangið: Nebo@haukar.is

Sumaríþróttaskóli Hauka endurspeglast af gleði, jákvæðni og miklu fjöri.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur öllum, enda eru allir velkomnir í Haukafjölskylduna!