Haukar fara í Austurberg í kvöld kl. 19:30

Strákarnir í upphitun í Frakklandi.

Strákarnir í upphitun í Frakklandi.

Eftir flotta ferð til Frakklands þótt að úrslitin hafi ekki verið eins og Haukastrákarnir hefðu viljað þá fá Haukastrákar ekki langan tíma til að sleikja sárin því strax í kvöld þegar Haukar fara upp í Austurberg og leika við ÍR.

Mótherjarnir í ÍR sitja í 8. sæti með 11 stig úr 15 leikjum en í síðasta leik unnu ÍR-ingar Valsmenn á útivell og mæta þeir því fullir sjálfstrausts inn í leikinn en liðin hafa mæst einu sinni í vetur en þá fóru Haukar með öruggan sigur 38 – 23 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 19 – 15.

Haukar sitja fyrir leikinn í efsta sæti með 24 sitg úr 14 leikjum og er því um að gera fyrir Haukafólk að fjölmenna upp í Breiðholt og hjálpa Haukunum að halda efsta stætinu en leikurinn í kvöld hefst kl. 19:30 í Austurbergi. Áfram Haukar!