Haukar eiga 3 fulltrúa í U-15 ára landsliði kvenna í handbolta

hsi_logoHrafnhildur Ósk Skúladóttir og Stefán Arnarson landsliðsþjálfarar u-15 ára landsliðs kvenna hafa valið 16 manna hóp sem mun fara til Skotlands helgina 14.-17. ágúst og taka þar þátt í æfingarmóti.
3 Haukastúlkur eru í hópnum en þær eru:
Alexandra Jóhannsdóttir, Alexandra Líf Arnardóttir og Berta Rut Harðardóttir. Við óskum þeim til hamingju með þennan árangur. Allan hópinn má sjá á heimasíðu HSÍ með því að smella hér.

Áfram Haukar!