Haukar deildarmeistarar 2016 í Olísdeild karla

Haukar eru deildarmeistarar í Olísdeild karla 2016. Strákarnir unnu góða sigur á Val í gær 32-31 en það var Tjörvi Þorgeirsson sem tryggði okkur sigurinn með frábæru marki á loka sekúndunum. Það er óhætt að segja að veturinn hafi verið góður hjá okkar strákum og enda þeir með 47 stig eftir 27 leiki. Þeir hafa aðeins tapað 7 stigum í allan vetur og hafa þeir fengið 19 stigum fleirra en liðið sem er í 3. sæti í deildinni.

Úrslitakeppnin hefst svo 14. apríl og munu andstæðingar okkar í 8-liða úrslitum vera Fram eða Akureyri.

Við óskum að sjálfsögðu strákunum til hamingju með þennan árangur!

Stelpurnar unnu líka góðan sigur á Val í gær og eru þeir efstar í deildinni þegar 2 umferðir eru eftir. Stelpurnar eiga mikilvægan leik við ÍBV í Eyjum á laugardaginn og með sigri taka þær stórt skref í átt að deildarmeistaratitli.

Áfram Haukar

 

Deildarmeistarar