Þór Þ. – Haukar í kvöld kl. 19:15 Haukafólk ætlar að sameinast í bíla á Ásvöllum kl. 17:20

haukur óskarsFjórði leikurinn í rimmu Hauka og Þórs fer fram í kvöld í Þorlákshöfn. Hauka leiða 2-1 og geta með sigri tryggt sig í undanúrslit og því er gríðarlega mikið undir fyir bæði lið.

Haukarnir hafa verið stígandi í sínum leik og hafa verið að spila betur og betur eftir því sem á einvígið hefur liðið. Í síðasta leik spiluðaði liðið áfram sinn sterka varnarleik og bættu vel í sóknarleikinn sem skilaði sér í góðum heima sigri. Strákarnir eru ákveðnir í því að koma grimmir til leiks í kvöld og ná að tryggja sig í undanúrslitin.

Stuðningsfólk Hauka hefur ákveðið að mætast á Ásvelli kl. 17:20 til að sameinast í bíla og keyra suður. Ljóst er að það þarf að mæta snemma til leiks og því verður lagt af stað kl. 17:30.

Við hvetjum sem flesta til að mæta og hvetja strákana á móti Græna drekanum.