Undanúrslit byrja í kvöld, miðvikudag, í Dominos deild kvenna.

sylviaUndanúrslit i Dominos deild kvenna byrja í kvöld, miðvikudaginn 30. mars, er Deildarmeistarar Hauka taka á móti Grindavík.

Haukar eiga harma að hefna á móti Grindvíkingum en þær slógu Hauka út úr bikarnum og því má búast við að Haukaliðið mæti grimmar til leiks og vilji hefna ófaranna. Haukastelpur hafa verið á góðu skriði síðustu vikur og hafa unið 10 leiki í röð og náðu að tryggja sér deildarmeistaratitilinn með stórkostlegum leik á móti Snæfell.

Grindvíkingar eru með gríðarlega öflugt lið, með 7 stelpur sem hafa verið í A landsliðinu og með góðan erlendan leikmann. Það er því ljóst að Haukarnir verða að spila vel og vera ákveðnar varnarlega til að knýja fram sigur. En stelpurnar hafa sýnt það að þær eru með frábært lið og ef þær spila af venjulegri getu ættu þær að tryggja sig áfram í úrslitin.

Við hvetjum allt Haukafólk til að fjölmenna í Schenkerhöllina í kvöld og hvetja stelpurnar til sigurs.